JÓLAFRÍ !!!Klara Valgerður
Jæja.. nú er ég komin í langþráða jólafríið :D ég kláraði síðasta prófið í gær og held að þessi prófatörn hafi nú bara gengið ágætlega.. allaveganna framar vonum ;)Svo nú verður bara djammað í kvöld :D :D veit ekki alveg hvað ég geri reyndar ... en það verður eitthvað skemmtilegt.. nema ég fer ekki með stelpunum niðrí bæ.. legg ekki í það með gips + hækjur :P en ég losna við það havarí á miðvikudaginn svo þá get ég gert allllt sem ég vil :D:D
En núna er ég (á að vera .... er náttúrulega í tölvunni núna :P ) að taka til í herberginu... það er með hræðilega prófljótu eins og ég.. það var allt í rúúúúst !!!! var að muna núna að borðið er svart... og gólfið .. já það er semsagt til staðar.. húsið er semsagt ekki byggt úr fötum ! en þetta er nú allt að koma hjá mér held ég barasta... er allaveganna búin að finna borðið og gólfið :D
Svo fer bara að líða að því að hvítvínsflaskan verði opnuð :D
ég er að fara heim á morgun !! :D:D:D ég hlakka svo til að komast heim og vera þar geðveikt lengi.. þarf reyndar að koma aftur í bæinn á miðvikudaginn en það er bara gott.. þá get ég keyrt heim sjálf á mínum eigins bíl !! xD ég er ekki búin að keyra í tæpar 6 viikur... sjææææsinn ætli ég kunni það ennþá :P well það kemur í ljós á miðvikudaginn.. .mæli með því að allir haldi sig inni eftir hádegi á miðvikudag ;) þá kem ég á göturnar hehee
en alllaveganna.. ætla að klára að taka til áður en Reynir Ari kemur heim... held að hann verði mjög ánægður með mig þá :P gvuuuð hvað ég vorkenni honum að hafa þurft að vera í kringum mig í þessari prófatíð.. :P en hann er svo yndislegur að hann kippir sér ekki upp við það :D
það styttist !!!!Klara Valgerður
Jæja.. nú er þetta allt að styttast... bara 3 dagar eftir og 2 próf.. veit ekki alveg hvernig ég á eftir að halda einbeitingunni við lærdóminn næstu 3 daga en það kemur allt ljós.. Ég er alveg að bilast á þessu ógeeeeeði !!! En.. alltaf verður maður að verðlauna sig svo á föstudaginn verður brjálað stuð... party party party ...
en fyrst þarf ég að tækla þessi próf.. ekki alveg jafn skemmtilegt
Svo styttist í það að ég komist heim í laaaaaaaangan tíma
fer heim á laugardaginn og verð þar þangað til skólinn byrjar eftir áramót um miðjan janúar.. reyndar mun ég nú eitthvað fara í bæinn en bara í stuttan tíma í einu.. 9 dagar !!!!!!! þar til ég losna við gipsið


ég fer alveg að taka það af mér sjálf.. en bara nokkrir dagar í viðbót :D:DHeld að ég ætti að fara að læra aftur svo ég nái nú þessum helv... prófum.
